Act white ;)

500 kall og málið er dautt ?!?! :D

29.11.2007 13:42:18 / ernast

jæja...

 

 

.... þá er komið að því.. ég ætla að kyssa þessa síðu mína bless og þakka fyrir góðar stundir! Hún hefur fylgt mér gegnum súrt og sætt og alltaf viljað hlusta á tuðið í mér! Því miður hef ég fundið nýjan og betri félaga til að deila með hugsunum mínum og verð því að segja skilið við þessa síðu!

Endilega kíkið á nýja félagann minn:

   www.erna85.bloggar.is

Vertu sæl síða mín kær og hafðu það gott, ég skal kíkja annað slagið á þig og athuga hvort þú hafir það ekki gott ;) ;*******


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.11.2007 14:52:19 / ernast

Jólin eru að koma!

 

 

Mamma mín var hér í bænum í síðustu viku og var alveg yndislegt að eyða tíma með henni þó að ég hefði ekki alveg getað eytt eins miklum tíma með henni og ég vildi sökum skóla og vinnu en, það styttist í jólafríiðJ 

Á fimmtudaginn fórum ég og Helga með mömmu, ömmu og Halldóru í rúmfatalagerinn, á leiðinni þangað var ekkert nema jólalög í útvarpinu, sem mér fannst alveg ótrúlega kósý því ég elska þessi lög og finnst jólin alveg svakalega skemmtilegur tími. Þegar við komum svo í rúmfatalagerinn var allt troðið af jólavörum og alls kyns dóti tengt jólunum J

Á fimmtudagskvöldið fór ég svo með Elínu, Gyðu og vinkonu þeirra Fanney á Eldhúspartý FM 957, sem var haldið í skíðaskála rétt fyrir utan bæinn, þar sem Páll Óskar hélt uppi fjöri og Magni(ficent) og það var mega fjör. Þar var boðið uppá heitt kakó og bjór og líka piparkökur, þar smakkaði ég sem sagt mína fyrstu piparköku fyrir þessi jól:) 

Svo þegar ég vaknaði áðan og leit út um gluggann þá sá ég að það er kominn snjór!! Þannig að já... jólin eru sko alveg að koma :D 

Það er bara ein vika eftir af skólanum og svo byrja ég í prófum 3. des, ég hlakka eiginlega bara til að taka prófin því eftir þau er svo stutt í að jólafríið!! Ég fer heim til Eyja 19. des! :D 

Í gær var ég að vinna á barnum á tónleikum Kim Larsen, sem voru haldnir í Vodafone-höllinni (valsheimilinu) og það var bara rosa gaman, Kristín mín var rosa abbó því hún er náttla dani og fílar hann í tætlur, og sagði að þetta væri svona svipað og að ég færi á Jeff Buckley tónleika. Þannig að ég hringdi í hana og leyfði henni að heyra í kappanum þegar hann tók “Livet er langt men lykken er kort” og henni  fannst það víst mega flott =) Svo eftir tónleikana fór ég bara heim að kúra mér! 

Get ekki skrifað meira í bili þar sem ég þarf að huga að eggjunum sem ég er að sjóða mér.. mín heimilisleg eða hvað ?? ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 14:19:12 / ernast

OHH!! :)

 

 

  

http://www.youtube.com/watch?v=5VSuCtebBT0 

Þetta er handa ykkur stelpur.. verðið að horfa á þetta !!! úfff

Annars kem ég bara með blogg á næstunni hef eiginlega ekkert að segja ykkur ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 21:49:28 / ernast

Heimþrá...

 

Halló halló fallega fólk.. hvað er að frétta ?

Fínt að frétta hjá mér..

Staffadjamm Nings var um daginn og var það mikið fjör eins og alltaf, ég og Helga tókum skemmtiatriðið okkar, sem var mr. Boombastic (fantastic lover y´all;)) og tókst það með ágætum... við lentum ekki á verðlaunapallinum, það voru dæmd fyrsta og annað sæti.. en Sandra sagði að við hefðum verið í þriðja... ég er ánægð á meðan ég kemst á pall :) hin atriðin voru líka mjög góð... ég hef aldrei verið mikill Abba fan en allir vita að ég var forfallin backstreet boys fan back in the day ;) haha

Ég fór til Eyja síðustu helgi og það var svo nice... mig langaði bara ekkert að fara aftur í bæinn, ég hef það svo gott alltaf bara í faðmi fjölskyldunnar að það er ekki eðlilegt... mig langar að vera bara aftur lítil og láta mömmu hugsa um mig og þurfa ekki að hafa áhyggjur af einu né neinu og láta breiða yfir mig þegar ég fer að sofa og svona... :) ohh good times! Við láum í leti alla helgina að glápa á vídjó, borða góðan mat, sofa og bara almenn leti og afslöppun :D Mig langar stundum bara að pakka saman dótinu mínu hérna og flytja bara heim...

EN ég hef Helgu mína yndislegustu og náttla alla hina sem gera mér lífið gott hérna í bænum... á svo góða að ;***

Annars er bara svona semí rólegheit í skólanum þessa dagana.. náttla lokapróf á næstu grösum.. hlakka bara til að taka þau.. þá er alveg að koma jólafrí :D:D:D

Mikið verður gaman um jólin ohh ég hreinlega get ekki beðið... kúrt með fjölskyldunni eins og ég fái borgað fyrir það, allir vinirnir samankomnir á einni eyju.. spilað.. sötrað skemmt sér og borðað besta mat í heimi :D mmmmmm

Næstu helgi er planið að skunda á Tríkot ball.. áhugasamir verða bara í bandi :p Alltaf stuð á þeim strákum :)

Núna er allt vit dottið úr mér og það þýðir að þið fáið ekki lengr blogg að sinni... bið að heilsa bara og veriði bless :D

 

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.10.2007 21:51:45 / ernast

Wassssup!

 

Hey folks... langaði að henda inn smá línu...

Airwaves var náttla algjör snilld og Lára mín geggjaður félagi ;* Sáum öll uppáhalds íslensku böndin mín og margar fleiri spennandi og maður er komin með nokkrar svona nýjar tilvonandi uppáhalds held ég :p ´

Sitjum hér við eldhúsborðið við sambýlingar að gera okkur tilbúnar fyrir kvöldið eða meira að peppa hvor aðra upp :D Erum að fara á staffadjamm Nings og aldrei getum við, þegar kemur að því að halda skemmtiatriði, setið á rassinum og notið kvöldsins, hehe við erum sem sagt að fara að gera okkur að enn meiri fíflum og ætlum að taka þátt í "idol" keppni sem verður milli staða... GO SUÐURLANDSBRAUT!!!! hehehe

En jæja vildi bara aðeins segja hæ.... þannig að hæ :D

Veriði bless... ekkert stress (tileinkað mér og Helgu) og fáið ykkur KEX :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 21:39:30 / ernast

Airwaves !!! :D

 

Jæja þá byrjar loksins hátíðin góða á morgun og ég hlakka mikið til... byrjar heldur ekki illa, byrjum á því að fara á Lights on the highway annað kvöld :) Myndi reyndar sjá meira fyrr um kvöldið ef ég þyrfti ekki að vinna en þetta er fínt ;)

Seinasta helgi fór í vinnu og reyndar líka smá tjútt... fór með Láru minni á Októrbersfest háskólans á föstudaginn, ætlaði að kíkja aðeins með henni og vera bara róleg en svo var svo svakaleg stemmning og bjórinn hræódýr þannig að ég skellti mér í fjörið! Það var mjög gaman og þvílík tilviljun að akkurat við borðið sem við settumst á voru allir strákarnir sem ég vinn með hjá VÍS hehe það var fyndið =) En já mikil stemmning, fólk að borða þýskar saltkringlur og syngja með 99 luftballoons.. mjög þýsk stemmning og Solla sæta var í Mjaltakonubúning :D Fyndið, ég fór með Láru að pissa við "hafið" og ákvað að líta á klukkuna því mér fannst við vera búnar að vera að skemmta okkur svo lengi og var að pæla hvort það væri ekki kominn tími til að skella sér heim, neinei var ekki klukkan bara 11 !!! HAHA það var snilld :)

En svo kíktum við aðeins í bæinn og svo fór ég heim snemma því ég þurfti að vinna morguninn eftir. Svo var ég að vinna á kattasýningu á sunnudaginn ohh sætu kisur! Loðnar og krúttlegar og mig langaði að klípa....

En jæja ætla að fara að stúdera Pride! Læt heyra í mér very soon!!! ciao


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 13:51:36 / ernast

Góð helgi :)

 

Jæja önnur vinnuvika og skólavika gengin í garð en þessi er nú samt í styttri kantinum! :) Það er frí í skólanum á fimmtudag og föstudag sem er voðalega ljúft. Sem sagt þetta Vetrarfrí.  Mitt markmið í þessu fríi er að sofa og taka til :D Væri samt ekkert verra ef að þetta frí hefði verið í næstu viku ohh það hefði bara verið snilld, þá væri helgin bara tileinkuð Airwaves, þó að hún verði það algjörlega en maður verður samt að vinna og mæta í skólann að sjálfsögðu =) 

Helgin var algjört æði, Fannar og Þórdís komu til mín á fimmtudaginn og eftir vinnu skelltum við okkur í bíó að sjá Chuck and Larry sem er mjög góð, ekki við öðru að búast eiginlega með þessa leikara á ferðinni! En ég bjóst samt eiginlega við meiru, væntingarnar voru orðnar svo miklar því fólk var alltaf að tala um hvað hún væri ROSAlega fyndin og skemmtileg.Á föstudag kom ég heim úr skólanum rétt fyrir 1 og þá voru allir ennþá sofandi... ég eina hressa manneskjan, löngu vöknuð og komin á ról :/ en ég fór þá bara að vesenast eikkað og reyna að hafa eins mikil læti og ég gat... svo þegar ég heyrði hreyfngu fraus ég og sagði “æææjjj vakti ég þig nokkuð” hahahaha neinei djók ég er ekki svo vond. Soffía mín kom reyndar með mér heim úr skólanum og við tókum smá eldhússpjall og svo fór ég með henni heim og hún lánaði mér geggjað 60´s dress :)

Svo var liðið loksins komið á fætur þegar ég kom heim og þá hófst loksins dagurinn og allt sem við áttum eftir að gera ! Við fórum í Kringluna og vorum að brasa ýmislegt, redda hinu og þessu og solleis og kíktum í Mjólkurbúðina góðu og versluðum í Crazy Frog og svona =) Svo kíktum við í kaffi til Halldóru og Daða og Fannar fékk ógeðslega hommalegustu skyrtu ever lánaða fyrir kvöldið þannig að við vorum orðin góð. Svo var hann í þröngum svörtum buxum af mér þannig að þið getið ímyndað ykkur. HAHA. Þórdís keypti sér fínan kjól í Kringlunni á 1000 kall... góð kaup það! Og kjóll sem hægt er að nota eftir þetta líka :D Svo fórum við heim að dressa okkur upp og gera hárið fínt og svo færðum við okkur inní betri stofuna og byrjuðum að sötra og spjalla og tralla!

Svo lá leið okkar í 60´s partyið ógurlega... nema hvað að við komum svo seint að allir voru farnir úr fötunum sínum og voru bara agalega fín hehehe en það var svo sem allt í lagi við pössuðum okkur að vera ekki of hallærisleg því við vorum búin að ákveða að kíkja á Nasa svo á tónleika, við gerðum það en ölvunin var í hámarki hjá okkur systkinum þannig að eftir tónleikana eða um klukkan 2 lá leið okkar bara heim... hehehe!!!

Laugardagurinn var mega fínn og vorum við bara fegin að hafa farið snemma heim :) Við byrjuðum á því að fara á American style að fá okkur sveittan hamborgara... og græddum afsláttarkort því gellan sem var að afgreiða var að fíla mig því ég var að skoða Airwaves dagskrá-bókina mína :D

Svo fórum við í heimsókn til systir hennar þórdísar, fengum strákinn hennar lánaðan og fórum með hann í bíó að sjá teiknimyndina Sharkbate... fín afþreying :D Svo fórum við á Pizza Hut með guttann og ég sver það við hin vorum meiri börn en hann og misstum okkur í að lita og gera krossgátu og orðarugl.. sem by the way er fyrir börnin sem eru yngri en 12!!! HahaSvo skiluðum við þessa líka ótrúlega skemmtilega og gáfaða barni af okkur og skelltum okkur í Pool... þar sem ég rústaði þeim!!! :D Svona næstum því....Eftir nokkra leiki fórum við svo bara á vídjóleigu og tókum 2 stykki spólur og fórum heim að liggja í leti :) 

Shit hvað þetta er að verða langt blogg og ég er örugglega ekki hálfnuð með allt sem ég hef að segja ! æj ... þið verðið bara að vera dugleg að lesa =)Á sunnudag fórum við svo bara að ráfa um smáralind og þau versluðu frá sér allt vit á meðan að ég horfði á og náttla hjálpaði til :) Svo fór ég bara heim og ætlaði að fara að læra... Þau skunduðu í nokkrar heimsóknir og svo í herjólfinn :(

En mér var svo boðið í læri og með því, afskaplega vinalegt og svo var spáð í bolla fyrir mér og skoðað í lófann minn... :D Það var margt fróðlegt sagt og gaman af þessu.. en ég nenni ekki að skrifa allt ... hver veit þá kannski rætist það ekki heldur :o Jæja ég ætla ekkert að hafa þetta mikið lengra... er að spá í að leggja mig aðeins fyrir vinnu, mig dreymdi svo hrikalega ílla í nótt að ég var alltaf að vakna og svona vesen þannig að jámm... ég svaf ekki mikið í nótt :S

Bið að heilsa í bili... bæjjjj ;*
Veriði svo dugleg að kommenta kindurnar mínar!

 

 

Og takk æðislega fyrir helgina Fannar minn og Þórdís ;**  

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.09.2007 22:57:48 / ernast

GOOOOOOOOOD!

Það er svo gaman þegar maður hefur nóg að gera... því mér finnst ekkert leiðinlegra en að leiðast! En það er alltaf jafn gaman í skólanum, það bara hrynja niður á mann prófin núna... enda er þessu önn töluvert styttri en hin þannig að maður verður að gera mikið á stuttum tíma! Þetta hefst allt saman á endanum! :)

Ég fór til Eyja um helgina og það var æðislegt! Svo gott að hafa það náðugt í faðmi fjölskyldunnar, borða mömmumat, knúsa hundana, fylgjast með pabba skoða textavarpið!! Haha... nei djók :p Hann var bara eikkað að vesenast í þakinu, sem er orðið rosalega flott! Var sem sagt verið að skipta um þak og þetta hús okkar fer bara að líta út eins og glænýtt =) Ég hjálpaði meirað segja til við að týna upp spýtur og nagla og svona.. mamma sagði mér að telja naglana.. og það gerði ég, þeir voru 1856! :P hehe Svo á laugardagskvöldið þá var smá skrall heima hjá Þórdísi.. það var voðalega kósý, vorum að spjalla, spila, missa okkur á Youtube og glamra á gítar (aðallega Fannar samt) ;) Þannig að jámm helgin var æði! 

Það styttist óðfluga í Airwaves! Er samt búin að missa töluna á hvað eru margir dagar þangað til.... ok skal hugsa.. 21!! Jebb gleðin byrjar á afmælisdag bróður míns eða 17. okt! Og keppinn ætlar meirað segja að joina systur sína þannig að það er sko von á fjöri!!! :D farið bara á www.midi.is ef þið viljið líka koma með =) 

Svo er bara spurning.. hvað á maður að gera af sér helgina 5-9 okt... áhugasamir endilega komið með ábendingu því ég er með valkvíða sjáðu :p Þýðir ekki að hafa ekkert að gera um fríhelgi...En jæja píbbs ég ætla að fara að poppa mér og glápa á vídjó eða eikkað...  bæj!


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 23:05:29 / ernast

Dugleg !

 

Já gott fólk.. annað blogg á stuttum tíma! Stelpan er farin að taka sig á! :)

Fínt að frétta bara, byrjuð í nýju vinnunni hjá VÍS og líkar bara mjög vel! :) Fínasta fólk sem ég er að vinna með en það er eikkað í umræðunni að fara að hafa djamm fljótt svo að fólk kynnist betur.. hehe ég hélt að ég væri sú eina sem hugsaði svona, að maður væri fljótari að kynnast í glasi! hehe svo virðist ekki! ;) En já við fengum að hringja okkar fyrsta símtal í kvöld og ég fékk sölu :D jeij!

Það gengur bara vel í skólanum so far, fékk meirað segja 10 í sálfræðiprófi á föstudaginn svo að ég monti mig aðeins! :) Mér líkar svo miklu betur á félagsfræðibrautinni, ég er meirað segja farin að hugsa um háskóla! Ég hélt að það myndi nú ekki gerast :P En ég þarf víst að ná mér í fallegu stúdentahúfuna fyrst, sem ég stefni á að fá á næsta ári... vona að það gangi eftir =)

Ég var að lesa á vísi.is að lögreglustjórinn vill að skemmtistöðum bæjarins verði lokað klukkan 2 á nóttinni, mér finnst það soldið snemmt... eða hvað? Maður hefur nú oft lent í því þegar maður er að djamma að maður er ekkert að fara í bæinn fyrr en kannski 1 eða hálf 2... en ef að þetta gengur eftir þá kannski fer maður fyrr í bæinn og er þar af leiðandi kominn fyrr heim þannig að þetta er kannski ekkert svo slæm hugmynd... en sjáum hvað gerist! Kemur í ljós! :P

Eins og þið sjáið hér til hliðar þá er komin ný skoðanakönnun og eru aðeins 31 dagur í þennan merka atburð! Ég læt mig sko ekki vanta, er meirað segja búin að fjárfesta í einum miða... endilega gerið slíkt hið sama og komið með mér =)

Ég hlakka svo til að fara heim til Eyja um helgina.. rólegheit og afslöppun í faðmi fjölskyldunnar! Úff nicE! Ég sakna þeirra svo mikið... aldrei að vita hvað bróðir minn dregur mann úti en það er þá bara gaman...

Jæja ætla aðeins að spjalla við liðið... heyrumst síðar.. bæjjjó

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 23:22:41 / ernast

Komin aftur ......

 

Jæja þá skal blogga smá fyrir ykkur =) Það er bara búið að vera soldið mikið að gera hjá mér... Er byrjuð í skólanum aftur og það er bara geggjað gaman :) Skipti yfir á félagsfræðibrautina aftur og líkar vel ... :)

Annars var sumarið algjör snilld, Hróaskelda, Þjóðhátíð, Rhodos og fleira skemmtilegt =) Takk fyrir æðislegt sumar allir sem eyddu tíma með mér !!! Rhodos var algjört ææææði guð hvað maður hafði það gott! Letilíf dauðans og hiti og skemmtilegheit!! Karaoke, kokteilar og rugl ;) haha

Um helgina er ég að fara í Roadtrip austur og verður örugglega mjög gaman, ég hlakka allavega mikið til bara :)

Annars er ekkert svo rosalega mikið að frétta... ég er komin með aðra vinnu.. hjá VÍS en er samt ekki byrjuð.. byrja örugglega í næstu viku, er að bíða eftir að heyra frá þeim! Þannig að það verður nóg að gera hjá mér í vetur, skóli og tvær vinnur :) Maður verður að vinna til að lifa víst... :)

Mikið hlakka ég til að fara heim að knúsa mömmu og pabba og alla!!! 21 sept fólk! Þá mæti ég á eyjuna!! Annars er Fannar hjá mér núna og vill endilega að við förum að hlusta á Alice í keðjum... þannig að bloggið verður ekki lengra að sinni... heyrumst fallega fólk ;****


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.08.2007 13:09:40 / ernast

RHODOS !!

 

Jæja Þjóðhátíðin búin og hún var alveg frábær í alla staði! Ég skemmti mér bara vel þó svo að hafa verið að vinna.. maður var nú líka að vinna í öllu fjörinu =)

Núna í nótt förum við svo til Keflavikur og fljúgum til Rhodos og verðum þar í 2 vikur :D Ég trúi því varla... enda ekki ennþá búin að taka uppúr töskum síðan í Eyjum.. hvað þá farin að pakka niður fyrir Rhodos :O hehe

En ég er að spá í að fara að koma mér í fíling :) Fara að heimsækja lið áður en maður fer, kíkja kannski á Dillon a sjá Dikta í dag og svona skemmtilegheit... og svo bara farin :)

Hugsa fallega til allra minna meðan ég ligg í sólbaði með kaldan í annari og guð má vita hvað í hinni :D

Bæjó


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.08.2007 00:16:36 / ernast

Eyjar á morgun :D

 

Jeij er loksins að fara heim á morgun :D Þjóðhátíðin að bresta á og ég er að fara að afgreiða mjög svo sveitta og góða hamborgara, samlokur, lunda og súpu ásamt kjúlla ;D JEIJ

11 dagar í Rhodos :D Jeij.. það verður svo ljúft!!!

Langaði bara aðeins að láta vita af mér... svona áður en ég verð orðin eldgömul kelling og kann ekki á tölvur lengur :/ Jebb maður er að skríða í 22 ára aldurinn... shiiiiiiiit oldy!!!

Jæja.. skemmtið ykkur vel um helgina og gangið hægt um gleðinnar dyr... ef þið verðið svöng í dalnum þá vitiði hvar mig er að finna... bæjj :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.07.2007 22:28:00 / ernast

Smá ferðasaga =)

Hæhæ elskurnar mínar =) Kominn tími á blogg held ég bara!!! Ætla nú að byrja á því að segja aðeins frá Hróaskeldunni!! Þetta var alveg mega gaman enda bjóst maður ekki við öðru... þessi hátíð var svolítið frábrugðin hátíðinni í fyrra sökum veðurs en ið vestmannaeyjingar erum nú slæmu veðri vön!!! Það var nú alls ekki slæmt veður í Danaveldi en bara soldið mikil rigning... mér persónulega fannst það bara gaman, finnst svo gaman að ver með regnhlíf =) Þetta byrjaði eiginlega á laugardagskvöldinu 1 júní.. þá var allur hópurinn samankominn heima hjá mér og Helguog tókum við gott djamm! =) Allir nema Unnþór mættu reyndar, hann þurfti að sinna konunni aðeins áður en við fórum! Sem er alveg skiljanlegt =) En já það var alveg heavy gaman hjá okkur, fórum í drykkjuspilið góða og það vakti mikla lukku. Addi var líka með okkur of svo kom Frikki líka en þeir fóru ekki með okkur út.. greyin ;) En já svo skunduðum við í bæinn og skemmtum okkur mikið vel.

Svo var bara sofið út daginn eftir og svo farið í það að pakka niður og þannig lagað. Eftir kvöldmatarleytið fórum við svo til KEF og hittum Erlu okkar sem kom ekki með okkur út þetta árið L en við fengum okkur öll KFC saman og kíktum aðeins á Paddy´s og þar byrjaði eignlega hátíðin... þar var hollenskt jazzband að spila og þeir voru mjög góðir! Svo var það bara flugvöllurinn, fríhöfnin og flugvélin!

Svo komum við til Danmerkur og það var fínasta veður... ég var pínu eftir mig eftir flugið var að skíta á mig úr hræðslu ef að ég á að segja eins og er... það var kona að fljúga vélinni og ég var eiginlega ekki að fíla það !  En þegar við komum til kaupmannahafnar ætluðum við að tékka okkur inná hótelið en nei þá máttum við það ekki fyrr en klukkan 14 og klukkan var ekki nema 7 eða 8 eða eikkað álíka lítið... þannig að við hentum af okkur farangrinum og fórum að labba Strikið þar sem allar búðirnar opnuðu ekki fyrr en um 11 :/ En við náðum að drepa tímann og loksins varð klukkan 14... þá fórum við uppá Dan Hostel og ætluðum að leggja okkur til svona 17 og fara svo í tívolíið... en nei við fengum ekki herbergið fyrr en um 17 því það náðist ekki í þrifkellinguna og var ekki vitað hvort herbergið okkar var hreint!!!! Dísess... þannig við slepptum því að leggja okkur og fórum beint í tívolíið... nema hvað að þá var komin alveg grenjandi rigning!!! En við létum það ekki stoppa okkur, skelltum yfir okkur regnslám og hlupum um tívolíið eins og 7 ára krakkar og mikið var gaman!!! Úff þvílíka fjörið!! Svo var farið heim að sofa..

svo chilluð við bara næsta dag... sváfum frameftir og fórum svo inní Nyhavn að hitta Gústa og Unnþór sem vöknuðu löngu á undan okkur og voru að sötra öl í sólinni... við fórum í bátsferð sem var rosa flott... það er voðalega fallegt í Danaveldi... hittum hafmeyuna frægu og hún var hress =) 

Fyrr um kvöldið fórum við á matsölustað sem heitir MamaRosa og átum og drukkum og skemmtum okkur alveg svakalega vel... létum eins og hálfvitar (sem og við erum) og allir voru farnir að hlægja að okkur... í hvert skipti sem bíll keyrði framhjá, það var nú ekki oft, þá var tónlistin í botni og þá dönsuðum við... og hlógum okkur svo máttlaus... hehehe og Unnþór varð alveg mígandi ruglaður af gulu gaurunum!!! Hehe þetta var snilld.. og svo eftir það  fórum við á djammið á stað sem heitir The Irish Roven og þar var sko mikið stuð’!! Þar var hress trúbador sem leyfði Sæþóri að taka tvö lög og stemmningin varð rosaleg við það... kvöldið endaði svo ekki eins skemmtilega þegar Unnþór lenti í rökræðum og honum var hent út ásamt okkur öllum.. þá fórum við uppá hótel en þar brutust líka út smá læti hjá okku og þetta endaði með því að okkur var öllum hent útaf hótelinu og höfðum 15 mín til að koma okkur í burtu... og erum á svörtum lista á þessu hóteli for life ;) Þannig að við tókum bara leigubíl og fórum á Roskilde festival svæðið.. tjölduðum á S svæði sem var K svæði í fyrra þannig að við könnuðumst við okkur =) Svo var háttað og lagt sig!

Daginn eftir var bara fínasta veður og við fórum í Roskilde bæinn að versla en svo byrjaði rigningin ógurlega... ég var að fíla það =) Sáum The Killers á fimmtudagskvöldið og þeir voru alveg magnaðir!! Svo sáum við líka Björk sem var góð en á smá sýru!! ;)Þetta var alveg snilldarhátíð og skemmtilegasta fólk sem ég var með! Unnþór fór til tengdó snemma og gisti þar það sem eftir var hátíðina og við enduðum líka á gistiheimili í Köben þar sem að tjaldið var farið að leka og dýnurnar og svefnpokarnir blautir og svona... eins og ég segi þá var þetta allt öðruvísi stemmning en í fyrra en samt mjög gaman... vesen að fara á gistiheimili og náttla miklu dýrari pakki en maður stjórnar náttla ekki veðrinu! Einkahúmor hátíðarinnar var Men vi var hended ut!!! HAAHAHA... okkur var allsstaðar hent út... fórum í lest á sunnudeginum... okkur var hent út! Fórum óvart inná fyrsta farrymi.. það var bara fyndið =) 

Við sáum sem sagt The Killers, Björk, The Who, Red Hot ChiliPeppers, Muse, Tiesto, The Flaming Lips, Beastie Boys og eikkað fleira sem ég man ekki... en við misstum líka af rosalega mörgu sem ég hefði viljað sjá vegna þess að við vorum náttla inní Köben.. það tók tíma að koma sér inná svæðið og svona... ég var ekki alveg að fíla það en svona er þetta bara... ég græt það ekki J Kristín kom ekki með okkur inná svæðið á Sunnudeginum að sjá Muse og ég væri fúl ef ég væri hún því þeir voru GEÐVEIKIR, þeir voru eiginlega bestir finnst mér... þó svo að það hafi verið alveg magnað að sjá RHCP live... ég sver það ég var í svo mikilli vímu að vera að horfa á þá og mér fannst þetta svo stórkostlegt að ég eiginlega man varla hvaða lög þeir tóku!! Hehehe... en já Muse... ég veit eiginlega ekkert meira sexy en þegar þeir tóku Supermassive black hole... guð minn almáttugur, svo var hann Bellamy alveg einstaklega sexy þetta kvöld.. í hvítum gallabuxum og í geðveikum jakka... ég átti ekki orð ;) 

Sæþór var að meika það alla hátíðina sem The one sound man.... alveg endalaust fyndið J Váá ég held að ég gæti alveg skrifað endalaust um þessa ferð þetta var svo mikil snilld... ég bara nenni ekki að fara útí fleiri smáatriði... ég hef eitt í viðbót að segja við ykkur... YOU HAD TO BE THERE!!!! =) Takk æðislega fyrir mig elsku ferðafélagar. Vona að þið komið með mér á næsta ári.. ég læt mig allavega ekki vanta J 

Annars er bara fínt að frétta... er bara að bíða eftir að þessi mánuðu líði því ég get ekki beðið eftir að fara aðeins heim í mömmu og pabbakot og hitta bróðir minn ;***** Læt þetta duga í bili Bless =)


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.07.2007 15:53:52 / ernast

ROSKILDE

 

Jebb er bara að fara að pakka og svo erum við bara alveg að fara að leggja í hann.. fljúgum til Denmark í kvöld :D

Roskilde we meet again!!! hahah ;)

Ég bið ykkur bara vel að lifa og passa ykkur vel þangað til ég hitti ykkur á ný...

Veriði bless... kveðja ein mígandi rugluð!


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 22:10:59 / ernast

*Spennt*

 

Ohh það er allt að gerast, fljúgum til Danmerkur eftir 5 daga... á sunnudaginn sem sagt og við erum alveg að deyja úr spenningi... við helga keyptum okkur bakpoka í gær.. svona langa djúpa ferðalanga bakpoka haha ætlum að vera túristanördar =) okkur langar að fara að pakka niður... gúmmískórnir eru komnir ofaní og vegabréfið mitt og miðinn =) Shiiiit... Sæþór prófaði að tjalda tjaldinu síðan í fyrra og lyktin var víst ekki góð... hann hefur örugglega líka rekist á nokkur lík ;)

Spennan er allavega í hámarki og þvílíkur ferðahugur kominn í okkur... ég veit ekki hvort ég eigi að skrifa meira því þið nennið ekkert að lesa meira um hvað við erum spennt... allavega gott veður sumarið komið, maður hangir inni að skúra því maður hefur ekkert að gera utandyra þegar maður á frí.. haha nörd ég veit... jæja... það er vídjókvöld og öllari, maður verður að fara að venja líkamann á ölið... hann mun fá mikið af honum næstu tvær vikurnar eða svo ;D

Bið að heilsa í bili.... kveðja Erna sem er komin til Danmerkur í huganum =)


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Skemmtilegar síður..